Fara í meginmál
VELDU ÞIGLífsþjálfun
Gleði · Kraftur · Seigla

Veldu þig —
á hverjum degi

Veldu þig lífsþjálfun hjálpar þér við að efla hugsanir þínar og ná fram þeim breytingum sem þú vilt gera í þínu lífi.

Tímar á Zoom · 50 mínúturEinstaklingar, hópar og fyrirtæki
Ingunn og Þórdís, lífsþjálfarar hjá Veldu þig
Lífsþjálfarnir þínir — eitt markmið: þú
Hvað er lífsþjálfun?

Endurforritun hugans

Í lífsþjálfun lærir þú að auðga líf þitt, líða betur og ná markmiðum þínum. Lífsþjálfi hjálpar þér að sjá og skilja hvað drífur þig áfram og hvað gæti mögulega verið að halda aftur af þér.

Við hjá Veldu þig tölum gjarnan um þetta sem endurforritun — að breyta gömlum forritum í huga okkar og hanna ný sem vinna með okkur í okkar framtíðarsýn.

Með lífsþjálfa getur þú unnið með:
Sjálfstraustið
Sjálfsmyndina
Markmiðin
Heilsuna
Samskipti og sambönd
Fjármálin
Þjónusta

Leiðir til að velja þig

Einstaklingar

Einstaklingstímar

Með lífsþjálfa finnur þú mátt þinn og færð verkfæri sem virka þér til vaxtar.

50 mín · ZoomNánar
Einstaklingar

Hópþjálfun

Eitt lítið skref á dag verður stór breyting á mánuði.

90 mín · ZoomNánar
Fyrir öll

Fyrirlestrar & námskeið

Fyrirlestrar og námskeið um gleði, kraft og seiglu fyrir vinnustaði og hópa.

90 mín · Á staðnum eða á ZoomNánar
Einkunnarorðin okkar

Gleði — Kraftur — Seigla

Gleði

Gleðin dregur úr streitu, styrkir sjálfsmyndina og gerir lífið innihaldsríkara og skemmtilegra.

Kraftur

Krafturinn gefur orku til að framkvæma, setja sér háleit markmið og vinna af eldmóð að því að ná þeim.

Seigla

Seiglan gerir okkur kleift að halda áfram þrátt fyrir hindranir — og standa uppi sterkari.

Teymið

Lífsþjálfarnir þínir

Ingunn Lára Hannesdóttir Scheving
Ingunn Lára Hannesdóttir Scheving
Lífsþjálfi

Þetta er lífsstílsbreyting sem ég brenn fyrir að kenna sem flestum, ungum sem öldnum.

Coach Tools Certified — The Life Coach School
Þórdís Jóna Jakobsdóttir
Þórdís Jóna Jakobsdóttir
Lífsþjálfi

Mitt mottó er að fólk minnist mín sem konu sem ávalt var að vaxa og læra.

Coach Tools Certified — The Life Coach School · Markþjálfi
Umsagnir

Orð frá fólkinu okkar

Að fara í lífsþjálfun hefur einfaldað líf mitt svo um munar. Ég hafði ekkert endilega mikla trú á þessu í byrjun en annað hefur svo sannarlega komið á daginn. Eftir að hafa verið í lífsþjálfun í rúmlega tvo mánuði líður mér eins og verkefni sem áður voru yfirþyrmandi séu leikur einn. Ekkert verkefni er mér ofviða.

Helgi · 43 ára

Ég var á þeim stað í lífinu að ég vissi ekkert hvort ég var að koma eða fara, fannst allt frekar dauft og litlaust. En eftir að ég fór að njóta leiðsagnar lífsþjálfa er þetta svart/hvíta líf að komast í lit. Ég þurfti hjálp við að sjá allt það góða sem lífið hefur upp á að bjóða og minna mig á að hafa gaman af þessu öllu og það hef ég öðlast síðan ég hóf mína vegferð hjá lífsþjálfa í Veldu þig.

Gunnar · 57 ára

Lífsþjálfun er það heimsins besta sem hefur ratað inn til mín og núna bara á nokkrum mánuðum besti parturinn af mínu lífi. Í lífsþjálfun lærir þú tækni við að ná stjórn á lífinu. Ég var búin að prófa alls konar hluti þegar lífþjálfunin læddi sér inn í líf mitt alveg óvart og í dag veit ég að ég stjórna þessu alfarið sjálf og það er svo dásamlegt.

Sigga Guðmunds · 60 ára

Að vera í hópi í lífsþjálfun hjá Veldu þig, hefur verið í senn lærdómsríkt og valdeflandi. Þótt við séum að fást við ólík verkefni í lífinu þá eiga verkfæri lífsþjálfunar alltaf við og ávallt hefur verið hægt að máta eigin aðstæður við það sem aðrir eru að fást við og læra af því. Veldu þig lífsþjálfar hafa sýnt okkur mikla þolinmæði við það að breyta lífsháttum okkar og gefið mikið af sér í þeirri vinnu. Það er sannarlega hægt að mæla með lífsþjálfun hjá Veldu þig.

Áslaug · 57 ára
Pistlar

Nýjast úr penna þjálfaranna

Allir pistlar

Að velja mig

Með því að horfast í augu við skömmina, segja frá, viðurkenna og setja ljós á hana þá er maður að skila skömminni.

Þórdís Jóna Jakobsdóttir

Skipulagið

Að hafa svona skýra sýn og vera bílstjórinn í mínu lífi er valdeflandi og kraftmikið.

Ingunn Lára Hannesdóttir Scheving
Bóka tíma

Veldu dag og tíma sem hentar þér

Einstaklingstímar fara fram á Zoom og er hver tími 50 mínútur. Þú færð staðfestingu og Zoom-hlekk í tölvupósti.

Skoða lausa tíma
Fyrsta samtalið

Ertu ekki viss hvort lífsþjálfun sé fyrir þig? Sendu okkur línu og við finnum út úr því saman.

Hafa samband