Lífsþjálfarnir þínir
Við erum tveir Coach Tools Certified lífsþjálfar frá The Life Coach School í Miami.

Ingunn Lára Hannesdóttir Scheving
Ég er Coach Tools Certified lífsþjálfi frá The Life Coach School í Miami og hársnyrtimeistari að mennt.
Ég rak hárgreiðslustofu í 24 ár en seldi hana vegna stoðkerfisvanda eftir slys. Árið 2021 byrjaði ég í lífsþjálfun og ég tala um lífið fyrir og eftir lífsþjálfun.
„Ég hef upplifað svo magnaðar breytingar með lífsþjálfunarfræðunum að mig langaði að kafa dýpra og læra þessi fræði. Þetta er lífsstílsbreyting sem ég brenn fyrir að kenna sem flestum, ungum sem öldnum.“
Ég bý í Mosfellsbæ og á bústað í Borgarfirði. Áhugamálin eru göngur í náttúrunni, ferðalög, bókmenntir og fræðiefni — og uppáhaldsstaðurinn minn er Dynjandi í Arnarfirði.

Þórdís Jóna Jakobsdóttir
Ég er Coach Tools Certified lífsþjálfi frá The Life Coach School í Miami, markþjálfi frá Evolvia, fíkni- og fjölskylduráðgjafi frá Ráðgjafarskóla Íslands og hársnyrtisveinn.
„Ég brenn fyrir að hjálpa fólki að styrkja sig og vaxa sem manneskjur og finnst mér lífsþjálfunarfræðin svo ótrúlega kröftug, einföld og skemmtileg leið til þess.“
Ég bý í Hvalfirði og höfuðborginni. Áhugamálin eru ferðalög, fjallgöngur, mótorhjól, fjallarafmagnshjól og sjósund.
